Kannabisræktun í Kópavogi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi í fyrrinótt. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 150 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á liðlega 200 grömm af marijúana. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

