Námskeið
Strax í September byrja hér stutt námskeið, námskeiðin koma til með að vera flest ein kvöldstund, og þá um eitthvað eitt atriði, eins og t.d, þetta kvöld er námskeið um að klóna, næsta kvöld gæti verið námskeið um smíði á klónabúri. Það mun verða hægt að pannta námskeið, fyrir 6 eða fleiri, en námskeiðagjald rennur í að halda fræðslunni áfram og verður í lámarki.
Þegar nær dregur sumri, þá ættum við að fá smá stundarskrá fyrir námskeiðin birt hér, og þeir sem eru búnir að skrá sig á póstlista mariajona.com, fá einnig tilkynningar á netfangið sitt.
Stefnan er að því að liður í skólanum, verði að nemendur skili af sér námskeiðum að eigin vali og því geta námskeið að öllu tagi komið upp.
Einnig mun mariajona.com fá kunnáttumenn frá öllum heiminum til að koma að kennslu hér á mariajona.com.


